Eitt frægastI GOLFVÖLLUR  á Íslandi

Vestmannaeyjar

Golf klúbbur

Golfvöllurinn í Vestmannaeyjum er af mörgum talinn sá fallegasti á landinu. Einstök náttúrufegurð umvefur völlinn sem spilar stóran þátt í upplifun kylfinga. Fyrri 9 holurnar eru leiknar inni í Herjólfsdal en seinni 9 meðfram Atlantshafinu. Einkennishola vallarins er 17. holan en upphafshöggið er slegið yfir sjóinn. Allir kylfingar þurfa að leika Vestmannaeyjavöll á sínum ferli.

Um Golfklúbb Vestmannaeyja

Golfklúbbur Vestmannaeyja var stofnaður árið 1938 og er því þriðji elsti golfklúbbur landsins. Upphaflega var völlurinn 6 holur og spilaður inni í Herjólfsdal. Síðar var völlurinn stækkaður í 9 holur en síðan gerður að glæsilegum 18 holu velli árið 1992. Íslandsmótið í golfi hefur farið 5 sinnum fram á Vestmannaeyjavelli og fer fram hér næst árið 2022.

Bókaðu Tee Times

Golf hefur alltaf verið vinsæl íþrótt í Vestmannaeyjum sem sést best á því að yfir 10% íbúa eru skráðir félagar í klúbbnum. GV hefur alla tíð lagt mikla áherslu á barna- og unglingastarf og er óhætt að segja að það starf hafi aldrei verið öflugra en undanfarin ár. GV var fyrsti félagsmaður ÍBV til að uppfylla kröfur ÍSÍ um fyrirmyndarfyrirtæki og er stjórnin stolt af því starfi sem hér fer fram á ársgrundvelli með börnum og ungmennum í Vestmannaeyjum.

Share by: